24febrúar
Jæja er hætt með þetta blogg....
nýtt á http://www.irsa.blog.is

16febrúar
AÐ FARA Í STURTU EINS OG KONA!!!
- Farðu úr fötunum og raðaðu þeim í flokkaðar "óhreina-taus-körfur"
- Ein fyrir ljósan þvott, ein fyrir dökkan, ein fyrir hvítan, og ein fyrir sérstaklega viðkvæm efni.
- Gakktu í átt að baðherberginu í síðum slopp. Ef að húsbóndinn sér til þín á leiðinni, mundu þá að hylja allt nakið hold og flýta þér inná baðherbergið.
- Horfðu á sjálfan þig í speglinum, ýttu maganum fram og kvartaðu í smástund við sjálfa þig yfir því hvað þú ert að verða feit. Stígðu inn í sturtuna.
- Athugaðu hvort að eftirfarandi sé ekki örugglega við hendina: Andlits-þvottapokinn, handarkrika-þvottapokinn, fyrir-neðan-mitti-þvottapokinn, grófi nudd-þvottapokinn og siðast en ekki síst .. appelsínu-húðar-nudd-steinninn.
- Þvoðu hárið einu sinni með Agúrku og Ginseng sjampóinu .. þessu sem inniheldur 83 nauðsynleg vítamín fyrir hárið.
- Þvoðu hárið aftur með Agúrku og Ginseng sjampóinu .. þessu sem inniheldur 83 nauðsynleg vítamín fyrir hárið.
- Notaðu Agúrgku/Ginseng næringuna .. þessari með viðbættu Burkna-olíunni og láttu standa í hárinu í 15 mínútur.
- Þvoðu þér í framan með Aprikósu-skröbbinu í tíu mínútur .. eða sirka þangað til þig fer að svíða verulega.
- Þvoðu restina af líkamanum með Ginger/Jaffa-Cake líkams-sápunni. Skolaðu næringuna úr hárinu í sirka 15 mínútur .. svo að örugglega öll afgangs næring hreinsist í burtu.
- Ef að húsbóndinn sturtar niður, sem leiðir til þess að vatnið hjá þér hitnar í smástund, skaltu öskra brjálæðislega og kalla hann öllum illum nöfnum.
- Skúfaðu fyrir sturtuna.
- Þurrkaðu upp alla bleytu í sturtunni.
- Notaðu Ajax sturtu sprey til að ná upp háglans á flísarnar. Ekki gleyma að athuga gólfið fyrir framan sturtuna og þurrka upp hvern einasta dropa.
- Farðu úr sturtunni.
- Þurrkaðu þig með handklæði sem er á stærð við lítið Afríku ríki.
- Pakkaðu hárinu inn í annað, extra rakadrægt handklæði.
- Skoðaðu allan líkamann í leit að minnsta blett eða hári. Notaðu neglur eða flísatöng til að gera út af við það sem þú finnur.
- Gakktu í átt að svefnherberginu í síðum slopp með handklæðið ennþá á höfðinu.
- Myndu að hylja allt nakið hold .. ef að húsbóndinn er nálægt.. og flýttu þér í átt að svefnherberginu.
- Ekki eyða undir hálftíma í að klæða þig!!!!
AÐ FARA Í STURTU EINS OG KARLMAÐUR!!!
- Farðu úr fötunum, sitjandi á rúminu,og skildu þau eftir í hrúgu fyrir framan rúmið.
- Gakktu nakinn í átt að baðherberginu. Ef að konan sér þig á leiðinni, hristu þá "vininn" í áttina að henni og segðu "Vúúííí".
- Skoðaðu karlmannlegt vaxtarlag þitt í speglinum og dragðu djúpt inn andann til að athuga hvort þú sért með "sixpakk" (sem þú ert ekki með.)
- Horfðu með aðdáun á stærðina á "félaganum", gríptu um hann og segðu "Jú vonna pís of ðis beibí".
- Farðu í sturtuna.
- Ekki hafa fyrir því að leita að þvottapoka ? ekki nota hann ef þú rekst á hann.
- Þvoðu þér í framan, undir höndum og "vöðvann".
- Hlæðu kjánalega yfir því hvað það heyrist hátt þegar þú rekur við í sturtu. Notaðu sjampó í hárið en ekki nota næringu.
- Búðu til móíkana-kamp með sjampóið í hárinu.
- Dragðu aðeins frá sturtuhengið til að sjá sjálfan þig í speglinum (tíhíhíhíhí).
- Pissaðu (í sturtunni að sjálfsögðu).
- Skolaðu þig og farðu úr sturtunni. Ekki taka eftir vatninu á gólfinu (sem kom til af því að þú hafðir hengið fyrir utan sturtubotninn.)
- Þurrkaðu þér lauslega.
- Horfðu á sjálfan þig í speglinum.
- Taktu nokkrar "pósur" og horfðu með aðdáun á stærðina á "jókernum" (aftur).
- Ekki draga fyrir sturtuna, og skildu eftir blautt gólf. Ekki slökkva inná baði.
- Gakktu í átt að svefnherberginu með handklæðið um mittið. Ef að þú rekst á konuna, dragðu þá handklæðið frá, gríptu um "gosann", taktu eina Elvis-sveiflu og segðu "Sssjabúmm".
- Athugaðu hvort að nærbuxurnar séu blettóttar, ef ekki, farðu þá í þær.
- Taktu sundur sokkaparið á gólfinu. Brjóttu aðeins úr þeim, og farðu í þá.
- Farðu í nýjan bol, en vertu annars í sömu fötum og þú notaðir í gær.
Já þá vitum við það
05febrúar
Þá eru13 dagar í að Sölvi verði 3 mánaða... orðin svaka stór :)
En skaust í kringluna á Laugardaginn,,,, og ég var jafn lengi að keyra upp i kringlu og finna bílastæði :o alveg kreysí sko.... svo þegar maður kom inn í kringluna var hún full af10 barna mömmum sem voru að missa sig í útsölukössunum....
Var sko fljót að forða mér út.... :þ
Skólin er byrjaður á fullu..... Uppþvottavélin komin bara lúxus :)
Skítaveður aftur orðið.... brrr alltaf geg kalt... hlakka sko til þegar það kemur sumar :D jibby
fara til útlanda og geta dundað sér úti í góða veðrinu án þess að vera pakkaður í billjón föt svo manni verður ekki kalt...
en nog i bili...
p.s. er að far borða á Hereford :) í kvöld mmmm...... :p
21janúar
Maður er nú frekar latur að blogga :/ enda kannski ekki mikill tími til þess... Ég er ný búin að vera lasin með einhverja skítapest og svo er Einar búin að vera lasin í viku og Sölvi litli er lasin líka
mjög gott ástand hérna.... *not*
En skólin bara að byrja hjá mér og læti :) verður nóg að gera hjá manni... Vona svo að það fari að hlýna og maður getur farið að fara einhvað út... nenni ekki út í þennan kulda :/ ekkert gaman.
En það sem er búið að gerast hjá mér síðustu daga er lasleiki, þrífa, hugsa um Sölva og kaupa bækur o.fleira.... alveg kreysí
Svo er Sölvi barasta orðin 2 mánða jimin hvað tímin er fljótur að líða... finnst samt eins og það sé miklu lengra síðan hann fæddist... en man það samt mjög vel... svona er þetta 
Svo fer maður barasta til Svíþjóðar í sumar verður eflaust hevý mikið stuð. Hitta Fríðu, Magnus, Ingu og Niklas. Alltaf gaman að hitta þær systur... 
Svo þarf maður að fara komast í búðir að kaupa föt :) ekki búin að gera það í MJÖG langan tíma. Eða allavena ekki kaupa föt á mig... maður hefur nátturlega ekki undan að kaupa föt á Sölva gæjinn stækkar svo hratt... Hann er búin að stækka um 10 cm síðan hann fæddist :) ekkert smá duglegur....
En ætla að fara leggja mig GN
08janúar
Tímin flýgur alveg áfram. Fjarnámið fer bráðum að byrja og svona stuð... vona að SÖlvi verði nú þægur svo ég fái frið til að læra (og orku)
Annars vorum við Einar að kaupa nýjan ísskáp svaka flottur, ætlum svo að kaupa hillusamstæði í stofuna, sófaborð og uppþvottavél. Bara töff og nice að þurfa ekki að vaska upp 
En við fórum í afmæli til Eiðs í gær, litli guttinn bara orðin eins árs. Geggjað fyndið að hann og Sölvi séu fæddir á sama ári.... ekkert smá mikið hvað þessi litlu kríli stækka á einu ári.
Við Einar fórum í Ikea um daginn og tókum Sölva með. Tókum kerruna hans og við vorum komin út og EInar var að færa dótið til að festa stólinn yfir í Toyotuna og ég var að reyna að setja kerruna saman... EN neinei ég gat það ekki var búin að vera heillengi að ýta á allt og reyna beygja allt sem mér datt í hug að beygja en kerra fór ekkert saman...
Svo þegar Einar var búin að festa SÖlva þá kom hann að hjálpa mér og fattaði hann hvernig þetta virkaði ( svaka auðvelt ).... Jæja en svo var málið að koma kerrunni fyri rí Toyotunni... Ekki það auðveldasta... En ja við Einar vorum svaka svöl að reyna brjóta kerruna saman og troða henni svo í skottið.
En er farin upp í rúm Sölvi er sofnaður aftur...
Góða nótt
04janúar
Jæja þá er 2006 árið liðið... finnst það vera nýbyrjað. En allavena þá hefur frekar mikið skeð á einu ári hjá mér.
Ég byrjaði árið á því að flytja til Rvk til Einars og hætti í FVA og fór að leyta mér að vinnu og varð Hagkaup í Skeifunni fyrir valinu. Byrjaði á kassa þar en fór stuttu seinna í þjónustuborðið.
Svo í Mars komumst við Einar að því að ég væri ólétt... vorum við frekar smeik í fyrstu en svo hvarf það nú eftir því sem á leið meðgangan og varð maður bara spenntari og spenntari.
Svo kom sumarið og það var nú lítið djammað
enda engin löngun til þess. Við Einar ætluðum að vera dugleg að fara í útileigu en það varð nú ekkert að því.. enda ég ekkert í besta forminu til þess... En í staðinn fórum við til Svíþjóðar með Ívani og Kristínu.
Svo bað Einar mín í Ágúst, þannig kjellan trúlofaðist.
Bumban mín hélt áfram að stækka og stækka og loks hætti ég að vinna í Október...
Var í mánuð í frí sem fór í að vaska upp, læra í fjarnáminu, fara út að labba, bíða eftir Sölva, sofa og fleira og fleira...
Loks rann Nóvember mánuður upp sem maður var búin að bíða spennt eftir... Alltaf vonaðist ég eftir að Sölvi færi bara að koma á hverjum degi. En svo gerðist ekki.
Fór á starfsmannaútsölu í Hagkaup 15.Nóvember og keypti eiginlega allar jólagjafirnar þá.
Svo þann 17. Nóvember fór ég í Kringluna með Gunnfríði hafði ekki séð hana síðan í Apríl... jæja svo varð kl. 20.30 og þá bbyrjuðu vægir verkir... og kl.01.56 kom yndislegasta manneskja í heimi hann Sölvi Snær 
Svo liðu dagarnir maður misþreyttur :)
Fór í próf úr sögu og nátt og náði þeim, Jólin komu stuttu eftir það og svo áramótin.
Og viti menn nýtt ár.
Jæja hverjum hefði dottið í hug að é myndi verða mamma í lok síðasta árs. Allavena ekki ég 
En árið 2006 var skemmtilegt, kom á óvart og var spennandi í kjölfarið.
Hvað ætli gerist á nýju ári?
Allavena spennandi ár fram undan
En gleðilegt nýtt ár öll sömul 
26desember
Þá eru jólin búin... og takk fyrir mig og Sölva fengum fullt af gjöfum

En allavena jólin voru mjög fín... pabbi, Einar og Guðmundur elduðu á meðan Sölvi var einhvað pirraður og drakk endalaust og Guðrún var inn í herbergi hjá mér. Vorum þar inni með lokað fram því það kom svaka reykur úr ofninum... einhvað fitu dæmi af kjötin sem lak inn í ofnin :/ en allavena svo loksins sofani Sölvi og var mjög góður til 22 iog þá vaknaði hann og vildi stanslaust drekka alveg til 6 um morguninn

var nú orðin svolítið þreytt þá..
En svona er þetta... maður fær víst ekki að sofa til hádegis lengur...
Svo er kvöldið í kvöld að verða alveg eins.... jimin vona að þetta ruglerí í honum fari að verða búið og maður getur fengið að sofa lengur en í 2 tima í senn að ekkað
Annars er voða lítitð að frétta... Vona að það fari að hlýna og maður getur farið út með Sölva í göngutúr... orðin frekar þreytt á þessari inniveru (srr fúla bloggið mitt).
Svo eru áramótin bara eftir ca viku... verður nú ´lítið djamm á okkur
Get ekki beðið eftir að fjarnámi byrji svo í Janúar.. fæ einhverja tilbreytingu frá brjóstagjöfinni og bleijum.
En ætla að fara horfa á failure to launch.... og reyna að láta Sölva sofna
24desember
GLEÐILEG JÓL 

23desember
Jólin eru á morgun

og maður er barasta að komast í jólaskap. Við Einar tókum til og gerðum hreint í nótt. Svo förum við á eftir og verslum smá meira jólaskraut á jólatréð okkar.... En ojj hvað er mikið skítaveður úti

Guðrún kom og passaði Sölva í gær meðan við Einar skrupum út í búð að kaupa mat yfir jólin.. Manni hlakkaði bara til að komast heim aftur þó svo að maður hafi bara farið inn í búð strax.
En er að horfa á Lord of the rings, bara hörku skemmtilegar myndir.

Litli jólastrákurinn minn
22desember
Síðasta dag fyrir jól flýtti ég mér í stórmarkaðinn til að kaupa gjafirnar sem ég komst ekki yfir að kaupa fyrr. Þegar ég sá allt fólkið þar, byrjaði ég að kvarta í hljóði "Þetta á eftir að taka heila eilífð og ég á enn eftir að fara á svo marga staði".
Jólin eru alltaf að verða meira og meira pirrandi með hverju árinu. Ég vildi að ég gæti bara lagst niður og farið að sofa og vaknað svo eftir jólin.
Allavegana, ég kom mér í leikfangadeildina og þar fór ég að skoða verðin, hugsandi hvort að börn leiki sér eitthvað með svona dýr leikföng. Eftir smá tíma af leikfangaskoði þá tók ég eftir litlum strák um 5 ára, sem hélt á dúkku upp við brjóstið sitt.
Hann strauk hárið á dúkkunni og virtist svo sorgmæddur. Svo snéri litli strákurinn sér að eldri konu sem var við hliðina á honum "amma, ertu viss um að ég hafi ekki nógu mikla peninga?" Gamla konan svaraði "þú veist að þú átt ekki nóg til að kaupa dúkkuna elskan mín"
Svo bað hún hann um að bíða í 5 mínútur eftir sér á meðan hún skoðaði sig um. Hún fór fljótlega.
Litli strákurinn hélt ennþá á dúkkunni í hendinni. Ég labbaði til hans og spurði hann hverjum hann ætlaði að gefa dúkkuna. "Þetta er dúkkan sem systir mín elskaði mest og langaði svo mikið í fyrir jólin.
Hún var svo viss um að jólasveinninn myndi gefa sér hana.
Ég sagði honum að kannski eigi jólasveinninn eftir að koma með dúkkuna til hennar, og að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur. En hann sagði við mig sorgmæddur "Nei jólasveinninn getur ekki gefið henni dúkkuna þar sem hún en núna. Ég verð að gefa mömmu dúkkuna svo að hún geti gefið henni hana þegar hún fer þangað". Augun hans voru svo sorgmædd meðan hann sagði þetta.
"Systir mín er farin til þess að vera með Guð. Pabbi segir að mamma sé líka að fara til Guðs mjög fljótlega, og ég hélt að hún gæti farið með dúkkuna fyrir mig og gefið systur minni hana".
Hjartað mitt stoppaði næstum því. Litli strákurinn leit upp til mín og sagði "Ég sagði pabba að segja mömmu að fara ekki alveg strax.
Ég bað hann um að bíða þangað til að ég kæmi heim úr búðinni" Svo sýndi hann mér fallega mynd af honum þar sem hann var hlægjandi. "Ég vil líka að mamma taki þessa mynd með sér svo að hún gleymi mér aldrei"
"Ég elska mömmu mína og ég vildi óska að hún þyrfti ekki að fara, en pabbi segir að hún verði að fara til að vera hjá litlu systur minni".
Svo leit hann aftur á dúkkuna með sorgmæddum augum, mjög hljóðlátur. Ég teigði mig hljóðlega í veskið mitt og tók smá pening upp og sagði við strákinn "en ef við athugum aftur í vasan til að tékka hvort að þú eigir nógan pening?" Allt í lagi sagði strákurinn "ég vona að ég eigi nóg" Ég bætti smá af mínum peningum við án þess að hann tæki eftir því og við byrjuðum að telja. Það var nógur peningur fyrir dúkkunni, og meira að segja smá afgangur. Litli strákurinn sagði "Takk Guð fyrir að gefa mér nógan pening. Svo leit hann á mig og sagði " Í gær áður en ég fór að sofa þá bað ég Guð um að vera viss um að ég hafi nógan pening til þess að geta keypt dúkkuna handa systur minni. Hann heyrði til mín" "Mig langaði líka að eiga nógan pening til að kaupa hvíta rós handa mömmu, en ég þorði ekki að biðja Guð um of mikið, en hann gaf mér nóg til að kaupa rósina líka". Sko mamma elskar hvíta rós". Nokkrum mínútum seinna kom gamla konan og sótti strákinn. Ég kláraði að versla með allt öðru hugarfari ég gat ekki hætt að hugsa um litla strákinn.
Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu fyrir 2 dögum síðan "maður keyrði drukkinn og klessti á bíl þar sem ung kona og lítil stelpa voru í.
Litla stelpan dó samstundis en mamman var í dái" Fjölskyldan varð að ákveða hvort þsð ætti að setja hana í öndunarvél eða ekki, af því að unga konan myndi ekki vakna úr dáinu.
Var þetta fjölskylda litla stráksins?
Tveim dögum eftir að ég hitti litla strákinn, las ég í blaðinu að unga konan hafi dáið. Ég gat ekki hamið mig og fór út í blómabúð og keypti búnt af hvítum rósum og fór upp í líkhús þar sem fólk gat séð konuna og óskað sér í seinasta skipti áður en hún væri jörðuð.
Hún var þarna í kjól, haldandi á fallegri hvítri rós með myndinni af litla stráknum og dúkkuna á brjóstinu. Ég fór grátandi og fannst líf mitt hafa breyst til eilífðar.
Ástin sem þessi itli strákur hafði til mömmu sinnar og systur, er enn þann dag í dag, erfitt að ímynda sér. Og í einni svipan tekur drukkinn maður þettta allt frá honum.